Afgreiðsla og ráðgjöf
Apótek
Lyfjaver óskar eftir þjónustulunduðum aðila til starfa við afgreiðslu og ráðgjöf í apótekinu að Suðurlandsbraut 22. Óskað er eftir einstaklingi í framtíðarstarf til að sinna fjölbreyttum verkefnum í þjónustu og afgreiðslu.
Unnið er á virkum dögum en vinna á laugardögum getur einnig komið til greina. Um fullt starf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn afgreiðslu- og þjónustustörf
- Afhending lyfja gegn lyfseðli
- Áfyllingar og önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsreynsla í apóteki er kostur
- Reynsla af sölu- og þjónustustörfum er kostur
- Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Hreint sakavottorð
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Umsóknarfrestur er til og með 4. ágúst.
About Us
Lyfjaver er leiðandi í lágu lyfjaverði og hefur síðan 2005 oftast mælst með lægsta verðið í verðkönnunum ASÍ og fleiri aðila. Með öflugum samhliða innflutningi lyfja og með því að nota ávallt nýjustu og bestu tækni hefur okkur tekist að standa vörð um lágt lyfjaverð til neytenda. Það er stefna Lyfjavers að bjóða viðskiptavinum sínum ávallt upp á ódýrustu lyfin á markaðnum á hverjum tíma. Auk apóteksins á Suðurlandsbraut 22 rekur Lyfjaver heilsuvöruverslunina Heilsuver sem býður upp á mikið úrval af vítamín-og bætiefnum, vegan vörum, ilmkjarnaolíum, hreinlætisvörum, matvörum og öðrum heilsutengdum vörum. Lyfjaver rekur einnig heildverslun sem selur lyf til aðila sem heimild hafa til að versla lyf í heildsölu. Hjá Lyfjaveri starfar stór og góður hópur reynslumikilla starfsmanna í fjölbreyttum störfum. Fjöldi lyfjafræðinga og lyfjatækna starfar hjá fyrirtækinu ásamt mörgum sérþjálfuðum starfsmönnum sem sinna verkefnum í lyfjaskömmtun, apóteki, Heilsuveri og heildsölu. Lyfjaver er sjálfstætt fyrirtæki í samkeppni við önnur apótek og heilsubúðir á markaðnum og er ekki hluti af keðju lyfjaverslana.
To be considered for this job, sign up and complete your profile.
Add your CV to Opus Futura to show interest in and check if you match with this job. The system reads the CV automatically. You just need to check that everything is correct and add your preferences. Then enjoy being automatically and anonymously matched with all other jobs defined by our customers. We never give access to your personal information such as name, gender, age, places of work, etc., unless you have confirmed that you want to be considered for a job opportunity that you have been matched with.
