Söluráðgjafi í söludeild
Söludeild
Við leitum að drífandi og metnaðarfullum söluráðgjafa í teymið okkar. Ef þér finnst gaman að ná góðum samningum þar sem báðir aðilar ganga ánægðir frá borði, þá er þetta mögulega starfið fyrir þig! Um starfið: Í söludeild Arion banka starfar kraftmikill hópur sem leggur áherslu á árangur og góða þjónustu við viðskiptavini. Þú munt sinna sölu, ráðgjöf og tilboðsgerð á tryggingum, sem og öðrum vörum bankans. Starfið býður upp á sveigjanleika í staðsetningu innan höfuðborgarsvæðisins og nærliggjandi bæjarfélaga. Helstu verkefni • Sala og ráðgjöf á tryggingum • Sala og ráðgjöf á skyldu- og viðbótalífeyri Arion banka og Frjálsa lífeyrissjóð • Tilboðsgerð og samningatækni • Úthringiverkefni og markaðsherferðir söludeildar Hæfniskröfur • Framúrskarandi þjónustulund • Frumkvæði og frábær samskiptahæfni • Áhugi á sölu og geta til að starfa í samkeppnishæfu umhverfi • Reynsla í sölu á tryggingum og góður skilningur á fjármálum er kostur • Menntun eða starfsreynsla sem nýtist í starfi Hafðu samband við Björgvin Má Þorvaldsson, þjónustustjóra fyrir nánari upplýsingar um starfið, netfang: bjorgvin.thorvaldsson@arionbanki.is. Ráðningarferlið er unnið í samvinnu við Opus Futura. Persónuverndarstefna þeirra er aðgengileg neðst á heimasíðu Opus Futura undir „Privacy Policy".
About Arion banki
Arion Bank is a leading Icelandic bank offering universal financial services to companies, institutional investors and individuals. These services include corporate and retail banking, investment banking, capital markets services, treasury services, asset management and comprehensive wealth management for private banking clients. Arion Bank has solely operations in Iceland.