Vaktstjórar / Shift Manager
Rekstur
Sporthúsið í Reykjanesbæ leitar að vaktstjórum.
Vaktstjóri ber ábyrgð á daglegri þjónustu á sinni vakt og tryggir að þjónusta við viðskiptavini, hreinlæti og starfsumhverfi séu ávallt til fyrirmyndar. Starfið felur í sér umsjón með afgreiðslu, daglegum þrifum á ákveðnum svæðum í samvinnu við ræstiteymi Sporthússins ásamt leiðsögn starfsfólks á vakt. Unnið er á 10-12 tíma dag- og kvöldvöktum til skiptis (2-2-3) á opnunartíma stöðvarinnar. Flestar vaktir eru frá kl. 05:15-17:15 eða 12:00-23:00 mán.-fös. og 07:45-17:00 eða 13:00-23:00 lau.-sun.
Helstu verkefni
- Ber ábyrgð á daglegri þjónustu sem Sporthúsið veitir á sinni vakt, skipuleggur verkefni og forgangsraðar í samráði við rekstrarstjóra/framkvæmdastjóra.
- Leiðbeinir, styður og fylgir eftir starfsfólki á vakt.
- Tryggir að verklagsreglum, öryggisreglum og þjónustustöðlum sé fylgt.
- Tekur á móti og þjálfar nýtt starfsfólk.
- Heldur utan um samskipti við rekstrarstjóra og skilar upplýsingum um frávik, bilanir eða önnur atriði sem krefjast eftirfylgni.
- Veitir framúrskarandi þjónustu og tekur vel á móti viðskiptavinum.
- Leiðbeinir viðskiptavinum um þjónustu, reglur og aðstöðu.
- Tekur á móti ábendingum og kvörtunum á faglegan og lausnamiðaðan hátt.
- Tekur virkan þátt í daglegum þrifum stöðvarinnar.
- Fylgist með að öll svæði séu hrein, snyrtileg og tilbúin fyrir viðskiptavini.
- Fylgist með ástandi tækja og húsnæðis.
- Tryggir að öryggisbúnaður og neyðarútgangar séu ávallt aðgengilegir og í lagi.
- Opnar og lokar stöðinni samkvæmt verklagsreglum þegar við á.
Hæfniskröfur
- Reynsla af þjónustustörfum er skilyrði.
- Reynsla af stjórnun eða verkstjórn er kostur.
- Góð samskiptafærni og þjónustulund.
- Frumkvæði, ábyrgðarkennd og skipulagshæfni.
- Hæfni til að vinna sjálfstætt og taka ákvarðanir.
- Jákvætt viðmót og hæfni til að leiða með góðu fordæmi.
- Góð íslensku- og enskukunnátta.
- Almenn tölvukunnátta.
About Us
Saga Sporthússins í Reykjanesbæ Snemma árs 2012 var gamla íþróttahúsinu á Ásbrú sem áður hýsti starfsemi Bandaríkjahers breytt í ríflega 2.000 fm líkams- og heilsuræktarstöð. Ari Elíasson ásamt eigendum Sporthússins í Kópavogi, Þröstur Jón og Ingi Páll Sigurðssyni eiga og reka Sporthúsið í Reykjanesbæ. Stöðin opnaði formlega þann 15. september sama ár. Stöðin hefur stækkað umtalsvert og er nú í um 5.000 fm með nýbyggingum. Í Reykjabesbæ má finna fullbúna heilsulind með gufu, heitum og köldum. Þar eru almennir hóptímasalir, tveir heitir salir en annar þeirra er infrared salur, spinning salur, SportHIIT, HYROX og CrossFit salir. Haustið 2026 bætast við padel völlur og golfhermar. Í húsnæðinu er einnig að finna Líkama & Boost, Unnar Má Osteópata og Bjarka hjá Kírópraktorstofu Íslands. Barnagæslan Krílabær er fyrir yngstu viðskiptavinina, sem njóta þar í góðu yfirlæti á meðan foreldrarnir rækta líkama og sál. Viðskiptavinir Sporthússins eru á öllum aldri og óhætt að segja að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Markmiðið okkar er að veita framúrskarandi persónulega þjónustu með það að leiðarljósi að viðskiptavinir okkar nái settum markmiðum og varanlegum árangri.
To be considered for this job, sign up and complete your profile.
Add your CV to Opus Futura to show interest in and check if you match with this job. The system reads the CV automatically. You just need to check that everything is correct and add your preferences. Then enjoy being automatically and anonymously matched with all other jobs defined by our customers. We never give access to your personal information such as name, gender, age, places of work, etc., unless you have confirmed that you want to be considered for a job opportunity that you have been matched with.
