Fjármála- og rekstrarstjóri Alva Capital
Fjármál og rekstur
Fjármála- og rekstrarstjóri Alva Capital
Leitað er að metnaðarfullum og árangursdrifnum aðila sem vill taka þátt í spennandi uppbyggingu Alva Capital. Megin áherslur félagsins eru þróun og rekstur fasteigna ásamt uppbygging og rekstur hótela.
Fjármála- og rekstrarstjóri ber ábyrgð á fjármálum og daglegum rekstri Alva Capital. Viðkomandi mun eiga sæti í framkvæmdastjórn félagsins og taka virkan þátt í stefnumótun og framfylgni á henni ásamt því að taka þátt í hinum ýmsu umbótaverkefnum. Fjármála- og rekstrarstjóri heyrir beint undir forstjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Yfirumsjón með daglegum rekstri.
- Framkvæmd og eftirfylgni markmiðasetningar og áætlanagerðar.
- Reikningshald, mánaðarleg uppgjör, árshluta- og ársuppgjör ásamt samskiptum við endurskoðendur.
- Greiningar á sviði fjármála, viðskipta og á hagræðingartækifærum í rekstri.
- Fjármögnun og samskipti við fjármálastofnanir.
- Samningagerð við þjónustuaðila og birgja.
- Ábyrgð á innra eftirliti og lögfræðilegum málefnum.
- Yfirsýn og umsjón með fjárfestingum félagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði endurskoðunar, viðskiptafræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
- Árangursrík stjórnunarreynsla og leiðtogahæfileikar.
- Mikil færni og reynsla á sviði fjármála og rekstrar.
- Reynsla af störfum á fjármálasviði hjá bygginga-, fasteignafélögum eða fyrirtækjum í skildum rekstri er kostur.
- Færni í markmiðasetningu, áætlanagerð sem og af umbótaverkefnum.
- Mjög góð þekking á Excel og BI greiningartólum ásamt færni í greiningarvinnu.
- Drifkraftur, jákvæðni og framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum.
About Us
Alva Capital er fjárfestingarfélag sem hefur í gegnum tíðina komið að stofnun og rekstri fjölmargra spennandi fyrirtækja (m.a. Netgíró, Heimkaup, Inkasso og Moberg). Megin áherslur félagsins eru fasteignaþróun, hótelrekstur, útleiga og rekstur fasteigna. Við ætlum okkur stóra hluti í fasteignaþróun á næstu misserum! www.alvacapital.is
Matching is completed for this job but we'll have many other opportunities for you. Sign up to Opus Futura and match with your future!
Add your CV to Opus Futura to show interest in and check if you match with this job. The system reads the CV automatically. You just need to check that everything is correct and add your preferences. Then enjoy being automatically and anonymously matched with all other jobs defined by our customers. We never give access to your personal information such as name, gender, age, places of work, etc., unless you have confirmed that you want to be considered for a job opportunity that you have been matched with.
