Sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjanesbæjar
Velferðarsvið
Reykjanesbær auglýsir laust til umsóknar starf sviðsstjóra velferðarsviðs.
Við leitum að öflugum leiðtoga sem hefur yfirgripsmikla þekkingu og reynslu af velferðarmálum ásamt sterkri reynslu af fjármálastjórnun og áætlanagerð. Mikilvægt er að sviðsstjóri hafi skýra sýn á ábyrga ráðstöfun fjármuna, hagkvæman rekstur og árangursríka nýtingu þeirra í þágu íbúa.
Hlutverk velferðarsviðs skv. lögum er að styðja við íbúa með fyrirbyggjandi aðgerðum, aðgerðum sem bæta lífskjör barna, einstaklinga og fjölskyldna, aðgerðum sem stuðla að jöfnuði og jöfnum tækifærum, aðgerðum sem efla færni íbúa til sem mestra lífsgæða og fullrar þátttöku í samfélaginu án mismununar. Áhersla er lögð á sterka framlínuþjónustu, gott samstarf kerfa, samþættingu þjónustu, notendasamráð, virðingu, eldmóð og framsækni í þróun og veitingu þjónustu við íbúa.
Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og er mikilvægt að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á daglegum rekstri og stjórnun sviðsins ásamt mannaforráðum á sviðinu.
- Ábyrgð á fjármálum, þ.m.t. fjárhags- og starfsáætlunum. Ber ábyrgð á að áætlanir fyrir sviðið séu gerðar með tilskyldum hætti og að þeim sé fylgt og þær virtar.
- Greinir og svarar fyrir frávik frá fjárhagsáætlun á fundum bæjarráðs og viðkomandi fagráðs.
- Frumkvæðis- og samræmingarhlutverk hvað varðar öflun og greiningu upplýsinga á sínu málaflokkasviði.
- Ábyrgð á undirbúningi stefnumótunar, þekkingaröflun innan sviðs og þróunarstarfi.
- Vinnur með öðrum stjórnendum Reykjanesbæjar í starfsmanna-, rekstrar- og þjónustumálum.
- Leiðir vinnu við þróun og innleiðingu umbóta á verklagi á sínu sviði og sýnir gott fordæmi á sviði stjórnunar.
- Veitir stjórnendum á sviðinu stuðning við faglega útfærslu verkefna, þ.m.t. við greiningu, samræmingu, lausnarleit og stýringu verkefna.
- Er leiðandi í samvinnu innan stjórnsýslu og utan til að efla heildarsýn, þjónustu við bæjarbúa, faglegar áherslur og hagkvæmni í rekstri
- Ber ábyrgð á að þjónusta sviðsins uppfylli lög, reglugerðir, samþykktir sveitarfélagsins og faglegar gæðakröfur og stuðlar að virku innra eftirliti og stöðugum umbótum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun nauðsynleg, s.s. félagsráðgjöf.
- Yfirgripsmikil þekking og reynsla af velferðarmálum og opinberri stjórnsýslu.
- Yfirgripsmikil þekking og reynsla af rekstri og mannaforráðum.
- Leiðtogahæfileikar og farsæl stjórnunarreynsla ásamt reynslu af því að leiða breytingar.
- Þekking og reynsla af stefnumótunarvinnu, þjónustustarfsemi og áætlanagerð.
- Framsýni, metnaður, skipulagshæfileikar, sjálfstæð vinnubrögð og geta til að vinna undir álagi.
- Greiningarfærni, lausnamiðuð hugsun, frumkvæði og styrkur í ákvarðanatöku.
- Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum og samstarfi.
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.
Hlunnindi
- Bókasafnskort.
- Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum.
- Gjaldfrjáls aðgangur í sund.
- Gjaldfrjáls aðgangur í strætó.
Vegna eðlis starfsins og þeirrar þjónustu sem sviðið veitir er æskilegt að viðkomandi búi í Reykjanesbæ.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf 1. nóvember 2026. Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið ásamt upplýsingum um umsagnaraðila. Öllum umsóknum verður svarað.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Upplýsingar gefur deild mannauðs og starfsumhverfis, netfang: starf@reykjanesbaer.is.
Umsóknarfrestur til 20. ágúst 2026.
About Us
Reykjanesbær er fjölskylduvænn bær sem þroskar og nærir hæfileika allra í gegnum öflugt skóla-, íþrótta-, og menningarstarf. Íbúar sinna fjölbreyttum störfum í vistvænu fjölmenningarsamfélagi sem einkennist af framsækni, eldmóði og virðingu. Reykjanesbær hefur að markmiði að hafa ávallt á að skipa hæfum og ánægðum starfsmönnum sem geta sýnt frumkvæði í störfum sínum og veitt bæjarbúum framúrskarandi þjónustu. Það er sameiginlegt verkefni starfsmanna og stjórnenda sveitarfélagsins að veita bæjarbúum sem allra besta þjónustu og sú samvinna byggir á gagnkvæmu trausti og virðingu fyrir ólíkum sjónarmiðum.
This job is subject to Icelandic law no. 138/2011 concerning the rights and duties of municipal government employees
According to Icelandic information law no. 140/2012, an application for a public sector job is considered official data after hiring ends. This means that after a hiring decision has been rendered, the public has a right to information about candidates' names, education, and work experience. In all other regards, the application is confidential.
You can withdraw your application at any time until a hiring decision is rendered.
To be considered for this job, sign up and complete your profile.
Add your CV to Opus Futura to show interest in and check if you match with this job. The system reads the CV automatically. You just need to check that everything is correct and add your preferences. Then enjoy being automatically and anonymously matched with all other jobs defined by our customers. We never give access to your personal information such as name, gender, age, places of work, etc., unless you have confirmed that you want to be considered for a job opportunity that you have been matched with.
