Steinaskjól.ehf

Workplace logo
Akureyri, Iceland Full-time Office hours By agreement with manager
Matching is completed

Rekstrarstjóri

Stjórnun

Rekstrarstjóri — Gistirekstur og fasteignir

Leitað er að öflugum rekstrarstjóra til að stýra daglegum rekstri gistihúsa og leigueigna á Norðurlandi. Viðkomandi verður hægri hönd eiganda og ber ábyrgð á rekstri, starfsfólki, viðhaldi og gestaþjónustu.

Helstu verkefni:

  • Dagleg yfirumsjón með gistihúsarekstri og leigueignum
  • Stjórnun þrifateymis og viðhaldsverkefna
  • Samskipti við gesti, bókunarsíður og birgja
  • Eftirlit með kostnaði og mánaðarleg yfirferð til eiganda
  • Samhæfing við verktaka vegna viðhalds og framkvæmda

Hæfniskröfur:

  • Reynsla úr gistirekstri, hótelrekstri eða fasteignastjórnun æskileg
  • Sjálfstæð vinnubrögð - eigandinn er ekki á staðnum daglega
  • Góð tölvukunnátta og skilningur á bókunarkerfum
  • Skipulagshæfni og hæfni til að forgangsraða
  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Við bjóðum:

  • Samkeppnishæf laun
  • Sjálfstætt og fjölbreytt starf
  • Tækifæri til vaxtar með vaxandi eignasafni

About Us

Steinaskjól rekur fjögur gistirými á Akureyri og í nágrenni — Hotel North, North Mountain View Suites, Steinaskjól Apartments og North City Center Apartments. Í dag erum við með lítið hótel í Eyjarfirði og 22 íbúðir sem þjóna ferðamönnum allt árið um kring. Við erum í miklum vexti og töluverð stækkun er á teikniborðinu á næstu árum — bæði fleiri íbúðir og stækkun hótelsins. Við stefnum á að auka þjónustu og gæði á öllum eignum okkar og byggja upp sterka gestaupplifun. Framtíðarsýn okkar er að byggja upp öfluga gistiþjónustu á Norðurlandi — þar sem sérhver gestur fær persónulega og vandaða upplifun. Steinaskjól er lítið og sveigjanlegt fyrirtæki þar sem hver starfsmaður hefur bein áhrif á árangur og vöxt. Við leitum að fólki sem er sjálfstætt, lausnamiðað og vill taka þátt í spennandi vexti fyrirtækisins.

Matching is completed for this job but we'll have many other opportunities for you. Sign up to Opus Futura and match with your future!

Add your CV to Opus Futura to show interest in and check if you match with this job. The system reads the CV automatically. You just need to check that everything is correct and add your preferences. Then enjoy being automatically and anonymously matched with all other jobs defined by our customers. We never give access to your personal information such as name, gender, age, places of work, etc., unless you have confirmed that you want to be considered for a job opportunity that you have been matched with.