Vélskömmtun lyfja
Vélskömmtun og gæðaeftirlit
Lyfjaver óskar eftir að ráða traustan starfsmann til framtíðarstarfa við vélskömmtun lyfja og gæðaeftirlit.
Almennur vinnutími er frá 8/8:30 til um 16:30.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna við skömmtunarvélar
- Rafrænt gæðaeftirlit
- Áfyllingar og önnur verk samkvæmt gæðaferlum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Áhugi eða reynsla af vinnu við lyfjaframleiðslu og/eða eftir gæðaferlum er kostur
- Nákvæmni og skipulögð vinnubrögð
- Góð almenn tækni- og tölvukunnátta
- Hreint sakavottorð
Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri og geta unnið yfirvinnu á álagstímum. Í boði er fjölbreytt starf í góðum starfsmannahópi.
Umsóknarfrestur er til og með 7 apríl.
About Us
Lyfjaver er leiðandi í lágu lyfjaverði og hefur síðan 2005 oftast mælst með lægsta verðið í verðkönnunum ASÍ og fleiri aðila. Með öflugum samhliða innflutningi lyfja og með því að nota ávallt nýjustu og bestu tækni hefur okkur tekist að standa vörð um lágt lyfjaverð til neytenda. Það er stefna Lyfjavers að bjóða viðskiptavinum sínum ávallt upp á ódýrustu lyfin á markaðnum á hverjum tíma. Auk apóteksins á Suðurlandsbraut 22 rekur Lyfjaver heilsuvöruverslunina Heilsuver sem býður upp á mikið úrval af vítamín-og bætiefnum, vegan vörum, ilmkjarnaolíum, hreinlætisvörum, matvörum og öðrum heilsutengdum vörum. Lyfjaver rekur einnig heildverslun sem selur lyf til aðila sem heimild hafa til að versla lyf í heildsölu. Hjá Lyfjaveri starfar stór og góður hópur reynslumikilla starfsmanna í fjölbreyttum störfum. Fjöldi lyfjafræðinga og lyfjatækna starfar hjá fyrirtækinu ásamt mörgum sérþjálfuðum starfsmönnum sem sinna verkefnum í lyfjaskömmtun, apóteki, Heilsuveri og heildsölu. Lyfjaver er sjálfstætt fyrirtæki í samkeppni við önnur apótek og heilsubúðir á markaðnum og er ekki hluti af keðju lyfjaverslana.
To be considered for this job, sign up and complete your profile.
Add your CV to Opus Futura to show interest in and check if you match with this job. The system reads the CV automatically. You just need to check that everything is correct and add your preferences. Then enjoy being automatically and anonymously matched with all other jobs defined by our customers. We never give access to your personal information such as name, gender, age, places of work, etc., unless you have confirmed that you want to be considered for a job opportunity that you have been matched with.
