Hagar

Workplace logo
Reykjavík, Iceland Full-time Office hours By agreement with manager
Matching is completed

Business Central forritari

Stafræn þróun og upplýsingatækni

Hagar hf., eitt stærsta fyrirtæki í smásölu á Íslandi, er að byggja upp stafræna framtíð sína og leitar nú að öflugum Business Central forritara sem hefur brennandi áhuga á að vinna í nútímalegu umhverfi.

Hjá Högum kappkostum við að þróa lausnir sem bæta þjónustu við viðskiptavini auk þess að auka skilvirkni í rekstri samstæðunnar. Þannig stuðlum við að því að tryggja viðskiptavinum okkar í senn besta mögulega vöruverð og jákvæðustu notendaupplifunina.

Hvað þú munt gera:

- Þróa og innleiða lausnir í Business Central.

- Vinna í samþættingum við önnur kerfi

- Veita faglega ráðgjöf ásamt, leiðbeina og aðstoð samstarfsfólk.

- Taka þátt í uppbyggingu ERP teymis og mótun vinnubragða

Við leitum að liðsfélaga sem hefur:

- Haldbæra reynslu af forritun í Dynamics 365 Business Central

- Reynslu af góðum vinnubrögðum í hugbúnaðarþróun

- Þekkingu á LS retail lausnum

Við bjóðum þér:

- Tækifæri til að vera hluti af framsækinni stafrænni umbreytingu hjá leiðandi íslensku fyrirtæki

- Hvetjandi og skapandi vinnuumhverfi þar sem tækni og nýsköpun eru í fyrirrúmi

- Sveigjanlegan vinnutíma og jafnvægi milli vinnu og einkalífs

- Aðgang að sterkum teymum sem deila þekkingu og hjálpa til við faglegan vöxt

- Tækifæri til að móta stafræna framtíð Haga hf.

- Við nálgumst teymisuppbyggingu með opnum hug og hvetjum því til skráningar, hvort sem þú hefur reynslu af öllu ofangreindu eða telur til einfaldlega geta vaxtið til verksins

About Us

Hagar eru samstæða fyrirtækja sem starfa á íslenskum og færeyskum markaði. Hagar leggja megin áherslu á matvöru, sérvöru- og eldsneyti, en eru einnig með þó nokkra starfsemi á öðrum mörkuðum, auk þess að hafa talsverð umsvif þegar kemur að fasteignum og fasteignaþróun. Hjá Högum og dótturfélögum starfa um 3,200 manns í um 1,800 stöðugildum, en velta samstæðunnar er nálægt 200 ma.kr. Innan þeirra rekstrareininga sem Hagar starfrækja á Íslandi eru m.a. 40 matvöruverslanir undir merkjum Bónus og Hagkaups, 65 Olís og ÓB stöðvar, Eldum Rétt netverslun, birgða- og sérvöruverslanir eins og Stórkaup og Zara, ásamt stórum vöruhúsum og framleiðslustöðvum. Í Færeyjum reka Hagar m.a. 13 matvöruverslanir í 3 keðjum, smávöruverslanir, fjölda veitingastaða, líkamsræktarstöðvar og stærstu verslunarmiðstöð landsins. Hagar búa einnig yfir umfangsmiklu fasteignasafni á Íslandi og í Færeyjum, en safnið telur vel yfir 60 þús. fermetra. Þá eru Hagar einnig með talsverð umsvif í fasteignaþróun í gegnum þriðjungshlut sinn í fasteignaþróunarfélaginu Klasa. Hagar er skráð félag á aðallista NASDAQ OMX Iceland.

Matching is completed for this job but we'll have many other opportunities for you. Sign up to Opus Futura and match with your future!

Add your CV to Opus Futura to show interest in and check if you match with this job. The system reads the CV automatically. You just need to check that everything is correct and add your preferences. Then enjoy being automatically and anonymously matched with all other jobs defined by our customers. We never give access to your personal information such as name, gender, age, places of work, etc., unless you have confirmed that you want to be considered for a job opportunity that you have been matched with.