Lagerinn Iceland ehf.
Sérfræðingur í upplýsingatækni
Upplýsingatæknideild
Við hjá Lagernum Iceland erum að leita að öflugum og sjálfstæðum sérfræðingi í upplýsingatækniteymi okkar. Starfið er tvíþætt þar sem helmingurinn er tæknivinna á borð við tækjastjórnun, aðgangstjórnun, öryggismál og sjálfvirknivæðingu. Hinn helmingurinn snýr að þjónustu og notendaaðstoð, móttöku nýrra starfsmanna og stuðningi við verslanirnar okkar. Sérfræðingur í upplýsingatækni heyrir beint undir forstöðumann upplýsingatæknisviðs og vinnur náið með kerfisstjóra.
Helstu verkefni
• Tækjastjórnun: umsjón með um 360 tækjum í Microsoft Intune og NinjaOne, þar með talið Windows fartölvur og vinnustöðvar, NCR afgreiðslukassar, Zebra handtölvur, farsíma. Einnig umsjón með prenturum, myndavélakerfum og ýmsum öðrum tölvubúnaði sem snýr að verslunarrekstri.
• Öryggi og regluvarsla: eftirfylgni með öryggisuppfærslum, grunnstillingum og Microsoft Defender viðvörunum.
• Uppsetning og eignaumsýsla: uppsetning, endurnýjun og afskráning búnaðar í verslunum og vöruhúsum.
• Notendaþjónusta: aðstoð við um 300 notendur á Íslandi og í Færeyjum í gegnum Zoho Desk og á starfsstöðvum sem eru fimmtán samtals.
• Nýliðun og starfslok: umsjón með aðgangi, leyfum og búnaði við ráðningar og starfslok.
• Sjálfvirknivæðing: Þróun lausna með PowerShell, Autopilot, Claude.ai o.fl. lausnum til þess að straumlínulaga og einfalda rekstur og eftirlit tölvukerfa, notendumsýslu og aðra þætti starfseminnar.
• Skjölun: Halda utan um og viðhalda skjölun á tölvumhverfi deildarinnar, breytingum á því ásamt leiðbeiningum og kynningarefni til starfsmanna.
Hæfni
• Að minnsta kosti 3 ára reynsla af tækjastjórnun, tækniþjónustu eða rekstri upplýsingatæknikerfa
• Reynsla og þekking á uppsetningu og umsjón á Windows 10/11 stýrikerfinu
• Hagnýt reynsla af Microsoft Intune eða sambærilegu MDM-kerfi
• Þekking á Microsoft 365 stjórnun: Entra ID, Exchange Online og Teams/SharePoint
• Færni í PowerShell skriftugerð.
• Áhugi og skilningur á upplýsingatækniöryggi.
• Sjálfstæði í starfi og geta til að forgangsraða milli þjónustubeiðna og verkefna.
• Rík þjónustulund og skýr samskipti við starfsfólk verslana.
• Nákvæm vinnubrögð og ábyrgð á þjónustu við notendur.
• Mjög gott vald á íslensku er skilyrði, góð enskukunnátta einnig nauðsynleg
Kostur
• Þekking á Windows AD, Group Policies og grunnþekking á Windows servers
• Þekking á Microsoft 365 rekstri
• Reynsla af NinjaOne eða sambærilegum RMM-verkfærum, Microsoft Defender og Microsoft Intune.
• Þekking á Business Central og LS Retail
• Þekking á rekstri á prenturum, prentþjónum og kassakerfum úr verslunarumhverfi.
• Þekking á Unify myndavéla- og aðgangstýringarkerfi
• Grunnþekking á netkerfum og öryggismálum
Starfsumhverfið
• Raunveruleg ábyrgð á öllum tækjaflota samstæðunnar.
• Nútímalegt Microsoft skýjaumhverfi með umboð til að bæta það.
• Taka þátt í vinnu við að þróa rekstur og eftirlit á nútíma tölvumhverfi þar sem gervigreindin sinnir margvíslegum verkefnum og aðstoðar við eftirlit og
ákvarðanatöku.
• Beinan aðgang að forstöðumanni og þátttöku í stafrænni vegferð samstæðunnar.
• Tækifæri til að vaxa í átt að sérhæfingu í tækjastjórnun, öryggismálum og kerfisstjórnun.
• Fjölbreytt starf þvert á verslunarrekstur í tveimur löndum.
About Us
Lagerinn Iceland er móðurfélag verslunarsamstæðu sem rekur JYSK og ILVA á Íslandi og JYSK og KidsLeikur í Færeyjum. JYSK er alþjóðleg keðja sem sérhæfir sig í vörum fyrir svefninn og heimilið. ILVA er húsgagnaverslun sem býður upp á breitt úrval húsgagna og heimilisvara.
Matching is completed for this job but we'll have many other opportunities for you. Sign up to Opus Futura and match with your future!
Add your CV to Opus Futura to show interest in and check if you match with this job. The system reads the CV automatically. You just need to check that everything is correct and add your preferences. Then enjoy being automatically and anonymously matched with all other jobs defined by our customers. We never give access to your personal information such as name, gender, age, places of work, etc., unless you have confirmed that you want to be considered for a job opportunity that you have been matched with.
