Stefnir leitar að sérfræðingum í áhugaverð störf
Greining, sjálfbærni og sjálfvirkni
Leitað er að einstaklingum með brennandi áhuga á sjóðastýringu og íslensku atvinnu- og efnahagslífi. Um er að ræða starf sérfræðings í almenn störf innan teymisins Greining, sjálfbærni og sjálfvirkni. Helstu verkefni fela í sér mat á fjárfestingarkostum og atvinnugreinum til að styðja við ákvarðanatöku fjárfestingarteyma félagsins auk ýmissa verkefna sem snúa að rekstri sjóða og félagsins. Helstu verkefni • Greining á mörkuðum, atvinnugreinum og fjárfestingarkostum • Gerð verðmata og arðsemisútreikninga • Skýrslugjöf og framsetning gagna • Gerð kynningarefnis Hæfniskröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. fjármál, viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði eða sambærilegt • Þekking og áhugi á viðskiptum • Nákvæm og góð vinnubrögð • Færni í upplýsingamiðlun • Hæfni í mannlegum samskiptum • Reynsla af fjármálamarkaði er kostur Ráðningarferlið fer fram í gegnum Opus Futura: • Opus Futura er ráðningarvettvangur sem tryggir hlutlægt, nafnlaust og sanngjarnt ráðningarferli. • Umsækjendur sækja um með því að fylla út prófíl á www.opusfutura.is • Pörun við starfið fer fram í gegnum kerfið, ef pörun verður fær umsækjandi tilkynningu og getur þá ákveðið hvort hann vilji halda áfram í ferlinu. Umsóknarfrestur: Síðasti pörunardagur er 26. júní 2025. Fullum trúnaði er heitið og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
About Stefnir
Stefnir er rótgróið íslenskt sjóðastýringarfyrirtæki með um 336 milljarða króna í virkri sjóðastýringu í lok árs 2024. Hlutverk félagsins er að stýra fjármunum í eigu viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi. Stefnir þjónar jafnt einstaklingum sem fagfjárfestum. Félagið var stofnað árið 1996. Stefnir hefur á að skipa þaulreyndu starfsfólki með mikla starfsreynslu á fjármálamarkaði og tengda menntun. Hjá Stefni starfa um 20 sérfræðingar í þremur teymum við stýringu á fjölbreyttu úrvali verðbréfa- og sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta. Félagið hefur allt frá upphafi verið í fararbroddi í þróun á nýjum tegundum sjóða, jafnt fyrir einstaklinga sem fagfjárfesta. Við þróun og stýringu sjóða er fyrst og fremst horft til hagsmuna viðskiptavina auk þess sem áhersla er lögð á árvekni, yfirsýn og öfluga fagþekkingu. Stefnir telur að traust og trúnaður séu lykilforsendur langtímasambands við viðskiptavini. Því er lögð mikil áhersla á heiðarleika í samskiptum og gegnsæi í upplýsingagjöf. Sérstök aðgát er viðhöfð við meðferð trúnaðarupplýsinga, hvort sem þær eru af viðskiptalegum eða persónulegum toga.
Interested? Sign up here!