Ískistan ehf.

Workplace logo
Reykjavík, Iceland Full-time Office hours
Matching is completed

Rekstrarstjóri

Skrifstofa

Ískistan ehf. er móðurfélag vaxandi fyrirtækja á sviði byggingaframkvæmda og hugbúnaðarþróunar. Skrifstofa félagsins er á Tangarhöfða, í nýuppgerðu, fallegu og björtu húsnæði. Á skrifstofunni starfa að jafnaði fimm manns. Fjöldi starfsmanna félaganna tveggja eru að jafnaði 20 manns.

Félagið hefur vaxið mikið undanfarin ár og er rekstur í góðu horfi. Félagið hefur þróað spennandi hugbúnað (SaaS lausn) sem er við það að fara á markað og mun rekstrarstjóri gegna lykilhlutverki í þeirri vegferð ásamt því að halda utan um rekstur félaganna.

Við leitum að öflugum og skipulögðum aðila sem vill taka virkan þátt í uppbyggingu fyrirtækjanna og tryggja skilvirkan og faglegan daglegan rekstur.

Rekstrarstjóri gegnir lykilhlutverki í starfseminni og starfar náið með framkvæmdastjóra móðurfélagsins. Hlutverkið felur í sér umtalsverða verkefnastjórnun, að halda utan um rekstur, ferla og verkefni félaganna, tryggja yfirsýn og vera tengiliður á milli stjórnunar og rekstrar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Dagleg stjórnun reksturs félaganna
  • Stuðningur við og þátttaka í sölu- og markaðsstarfi hugbúnaðarlausnarinnar
  • Virk þátttaka í hugmyndavinnu um frekari markaðssetningu lausnarinnar
  • Verkefnastjórnun; utanumhald um framgang, forgangsröðun, skipulagningu og eftirfylgni verkefna
  • Móta, innleiða og bæta verkferla til að auka skilvirkni
  • Samskipti og samvinna við starfsfólk skrifstofu
  • Vera tengiliður framkvæmdastjóra móðurfélagsins við dótturfélögin
  • Vera „brú“ milli stjórnunar og reksturs, og styðja við vöxt og þróun fyrirtækjanna

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
  • Sterk verkefnastjórnunar- og skipulagshæfni
  • Reynsla af því að halda utan um rekstur, ferla og samskipti í fjölbreyttu umhverfi
  • Reynsla af fyrirtækjum í örum vexti eða umbreytingu fyrirtækja
  • Hæfni til að vinna markvisst með gögn, tölur og yfirlit
  • Gott vald á íslensku og ensku, í ræðu og riti
  • Yfirvegun, sjálfstæði og fagmennska í mannlegum samskiptum
  • Traust, dugnaður og lausnamiðuð hugsun
  • Geta til að vinna undir álagi í fjölbreyttu og krefjandi umhverfi

About Us

Ískistan ehf. er móðurfélag vaxandi fyrirtækja á sviði byggingaframkvæmda og hugbúnaðarþróunar. Skrifstofa félagsins er á Tangarhöfða, í nýuppgerðu, fallegu og björtu húsnæði. Á skrifstofunni starfa að jafnaði fimm manns. Fjöldi starfsmanna er að jafnaði 20 manns.

Matching is completed for this job but we'll have many other opportunities for you. Sign up to Opus Futura and match with your future!

Add your CV to Opus Futura to show interest in and check if you match with this job. The system reads the CV automatically. You just need to check that everything is correct and add your preferences. Then enjoy being automatically and anonymously matched with all other jobs defined by our customers. We never give access to your personal information such as name, gender, age, places of work, etc., unless you have confirmed that you want to be considered for a job opportunity that you have been matched with.