Hagar

Workplace logo
Reykjavík, Iceland Full-time Office hours Remote 1-2 days a week
Matching is completed

Full Stack forritari með áherslu á framenda

Stafræn þróun og upplýsingatækni

Full stack forritari með áherslu á framenda - Vertu hluti af stafrænni framtíð Haga hf.

Hagar hf., eitt stærsta fyrirtæki í smásölu á Íslandi, er að byggja upp stafræna framtíð sína og leitar nú að reynslumiklum forritara sem hefur brennandi áhuga á að vinna í nútímalegu umhverfi.

Hjá Högum kappkostum við að þróa stafrænar lausnir sem bæta þjónustu við viðskiptavini auk þess að auka skilvirkni í rekstri samstæðunnar. Þannig stuðlum við að því að tryggja viðskiptavinum okkar í senn besta mögulega vöruverð og jákvæðustu notendaupplifunina.

Ef þú brennur fyrir að hanna og byggja heildstæðar lausnir - sér í lagi á framenda í React og á bakenda í C#/.NET Core, og vilt leggja þitt af mörkum til nýsköpunar í íslenskri smásölu, þá viljum við heyra frá þér!

Hlutverk og ábyrgð:

  • Hanna, þróa og viðhalda heildstæðum lausnum — bæði framenda í React og bakenda í C#/.NET Core.
  • Hanna og innleiða API þjónustur sem uppfylla kröfur um öryggi, afköst og viðhaldshæfni.
  • Vinna í þverfaglegu teymi að þróun stafrænna lausna fyrir smásölu og þjónustu.
  • Taka þátt í ákvörðunum um hugbúnaðararkitektúr og leggja mat á tæknilegar lausnir.
  • Huga að notendaupplifun og hönnun við þróun véf- og appviðmóta.
  • Tryggja gæði kóða, m.a. með kóðayfirferðum og prófunum, og stuðla að faglegum vinnubrögðum í þróunarferli.
  • Leiðbeina og styðja við aðra forritara í teyminu eftir þörfum.
  • Bregðast við breytingum hratt og skilvirkt í samræmi við Agile aðferðafræði.

Við leitum að liðsfélaga sem:

  • Hefur umtalsverða reynslu af full stack þróun, bæði á framenda og bakenda.
  • Hefur sterka reynslu af React (og gjarnan React Native) fyrir framenda.
  • Hefur sterka reynslu af C# og .NET Core fyrir bakenda, þ.m.t. hönnun RESTful API.
  • Hefur þekkingu á gagnagrunnum og gagnalíkönum (t.d. SQL).
  • Hefur reynslu af eða þekkingu á skýjaumhverfi (t.d. Azure eða AWS) er kostur.
  • Er lausnamiðaður og með hæfni til að greina og leysa flóknar áskoranir á einfaldan hátt.
  • Hefur góða tækniþekkingu og fylgist vel með nýjungum í hugbúnaðarþróun.
  • Sýnir sjálfstæði, frumkvæði og hefur metnað fyrir faglegum vinnubrögðum.
  • Hefur reynslu af leiðsögn eða mentorship gagnvart öðrum forriturum er kostur.
  • Hefur brennandi áhuga á notendaupplifun og góðan skilning á mikilvægi hönnunar í hugbúnaði.

Við bjóðum þér:

  • Tækifæri til að vera hluti af framsækinni stafrænni umbreytingu hjá leiðandi íslensku fyrirtæki.
  • Hvetjandi og skapandi vinnuumhverfi þar sem tækni og nýsköpun eru í fyrirrúmi.
  • Sveigjanlegur vinnutími og jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
  • Aðgangur að sterkum teymum sem deila þekkingu og hjálpa til við faglegan vöxt.
  • Tækifæri til að hafa mótandi áhrif á tæknilega stefnu og framtíð Haga hf.

Við nálgumst teymisuppbyggingu með opnum hug og hvetjum því til umsóknar, hvort sem þú hefur reynslu af öllu ofangreindu eða telur þig einfaldlega geta vaxið til verksins.

About Us

Hagar eru samstæða fyrirtækja sem starfa á íslenskum og færeyskum markaði. Hagar leggja megin áherslu á matvöru, sérvöru- og eldsneyti, en eru einnig með þó nokkra starfsemi á öðrum mörkuðum, auk þess að hafa talsverð umsvif þegar kemur að fasteignum og fasteignaþróun. Hjá Högum og dótturfélögum starfa um 3,200 manns í um 1,800 stöðugildum, en velta samstæðunnar er nálægt 200 ma.kr. Innan þeirra rekstrareininga sem Hagar starfrækja á Íslandi eru m.a. 40 matvöruverslanir undir merkjum Bónus og Hagkaups, 65 Olís og ÓB stöðvar, Eldum Rétt netverslun, birgða- og sérvöruverslanir eins og Stórkaup og Zara, ásamt stórum vöruhúsum og framleiðslustöðvum. Í Færeyjum reka Hagar m.a. 13 matvöruverslanir í 3 keðjum, smávöruverslanir, fjölda veitingastaða, líkamsræktarstöðvar og stærstu verslunarmiðstöð landsins. Hagar búa einnig yfir umfangsmiklu fasteignasafni á Íslandi og í Færeyjum, en safnið telur vel yfir 60 þús. fermetra. Þá eru Hagar einnig með talsverð umsvif í fasteignaþróun í gegnum þriðjungshlut sinn í fasteignaþróunarfélaginu Klasa. Hagar er skráð félag á aðallista NASDAQ OMX Iceland.

Matching is completed for this job but we'll have many other opportunities for you. Sign up to Opus Futura and match with your future!

Add your CV to Opus Futura to show interest in and check if you match with this job. The system reads the CV automatically. You just need to check that everything is correct and add your preferences. Then enjoy being automatically and anonymously matched with all other jobs defined by our customers. We never give access to your personal information such as name, gender, age, places of work, etc., unless you have confirmed that you want to be considered for a job opportunity that you have been matched with.