Senior forritari
Þróun
Við hjá Alda Öryggi erum að leita að reyndum Senior forritara í brúna hjá okkur sem vill taka þátt í að byggja upp alþjóðlegt hugbúnaðarfyrirtæki. Við höfum þróað tímamóta öryggisstjórnunarkerfi fyrir sjávarútveg sem hefur sannað gildi sitt á Íslandi og er í notkun hjá íslenskum og erlendum útgerðum. Nú stefnum við á frekari útbreiðslu erlendis og leitum að öflugum einstaklingi sem vill taka tæknilega forystu í þeirri vegferð.
Ef þú ert með sterka reynslu af margþættum hugbúnaðarkerfum, bakenda-arkitektúr og vilt hafa raunveruleg áhrif á að bjarga mannslífum, þá viljum við endilega heyra í þér
Helstu verkefni og ábyrgð
Við leitum að reyndum að reyndum senior forritara sem getur tekið tæknilega forystu í þróun Öldunnar, haft yfirsýn yfir verkefnin og borið ábyrgð á gæðum, öryggi og áframhaldandi þróun kerfisins.
Starfið krefst sjálfstæðra vinnubragða, frumkvæðis og góðra samskipta. Mikilvægt er að geta unnið náið með öðrum í teyminu.
Menntunar- og hæfniskröfur
Mikil reynsla í smíði hugbúnaðar og hugbúnaðarkerfum með og án notkunar gervigreindar. Skilningur á context-engineering.
Öryggisvitund: Þú þekkir XSS, CORS og örugga meðferð innskráningarupplýsinga.
Sveigjanleiki í gagnagrunnum: Þér líður vel í bæði SQL og Firestore.
Tæknistakkurinn
Bakendi: Node.js (Express.js), Typescript, MS-SQL, Firebase/Firestore.
Framendi: React, React Native, Zustand, Chakra UI.
Vöktun: Sentry (Error + APM).
About Us
Alda Öryggi er íslenskt "Safety as Service" nýsköpunar- og þjónustufyrirtæki sem þróar stafrænar lausnir til að bæta öryggi sjómanna og einfalda öryggisstjórnun í sjávarútvegi. Við höfum þróað öryggisstjórnunarkerfi sem er þegar í notkun hjá íslenskum og erlendum útgerðum. Markmiðið er að efla öryggismenningu, fyrirbyggja slys og stuðla að öruggara starfsumhverfi sjómanna og í sjávarútvegi. Aldan er í örum vexti og stefnir að aukinni útbreiðslu á alþjóðlegum markaði. Við vinnum náið með sjávarútvegsfyrirtækjum og sérfræðingum í öryggismálum að þróun lausna sem mæta raunverulegum þörfum atvinnugreinarinnar. Hjá Öldunni starfar lítið en metnaðarfullt teymi þar sem frumkvæði, samstarf og nýsköpun skipta máli. Við leggjum áherslu á sveigjanleika, ábyrgð og að starfsfólk hafi raunveruleg áhrif á þróun fyrirtækisins. Við trúum því að með réttri nýtingu tækni og öflugri öryggismenningu sé hægt að gera störf sjómanna öruggari – á Íslandi og um allan heim.
Matching is completed for this job but we'll have many other opportunities for you. Sign up to Opus Futura and match with your future!
Add your CV to Opus Futura to show interest in and check if you match with this job. The system reads the CV automatically. You just need to check that everything is correct and add your preferences. Then enjoy being automatically and anonymously matched with all other jobs defined by our customers. We never give access to your personal information such as name, gender, age, places of work, etc., unless you have confirmed that you want to be considered for a job opportunity that you have been matched with.
