Fjármála- og rekstrarstjóri Alva Capital
Fjármál og rekstur
Fjármála- og rekstrarstjóri Alva Capital
Leitað er að metnaðarfullum og árangursdrifnum aðila sem vill taka þátt í spennandi uppbyggingu Alva Capital. Megin áherslur félagsins eru þróun og rekstur fasteigna ásamt uppbygging og rekstur hótela.
Fjármála- og rekstrarstjóri ber ábyrgð á fjármálum og daglegum rekstri Alva Capital. Viðkomandi mun eiga sæti í framkvæmdastjórn félagsins og taka virkan þátt í stefnumótun og framfylgni á henni ásamt því að taka þátt í hinum ýmsu umbótaverkefnum. Fjármála- og rekstrarstjóri heyrir beint undir forstjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Yfirumsjón með daglegum rekstri.
- Framkvæmd og eftirfylgni markmiðasetningar og áætlanagerðar.
- Reikningshald, mánaðarleg uppgjör, árshluta- og ársuppgjör ásamt samskiptum við endurskoðendur.
- Greiningar á sviði fjármála, viðskipta og á hagræðingartækifærum í rekstri.
- Fjármögnun og samskipti við fjármálastofnanir.
- Samningagerð við þjónustuaðila og birgja.
- Ábyrgð á innra eftirliti og lögfræðilegum málefnum.
- Yfirsýn og umsjón með fjárfestingum félagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði endurskoðunar, viðskiptafræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
- Árangursrík stjórnunarreynsla og leiðtogahæfileikar.
- Mikil færni og reynsla á sviði fjármála og rekstrar.
- Reynsla af störfum á fjármálasviði hjá bygginga-, fasteignafélögum eða fyrirtækjum í skildum rekstri er kostur.
- Færni í markmiðasetningu, áætlanagerð sem og af umbótaverkefnum.
- Mjög góð þekking á Excel og BI greiningartólum ásamt færni í greiningarvinnu.
- Drifkraftur, jákvæðni og framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum.
Um okkur
Alva Capital er fjárfestingarfélag sem hefur í gegnum tíðina komið að stofnun og rekstri fjölmargra spennandi fyrirtækja (m.a. Netgíró, Heimkaup, Inkasso og Moberg). Megin áherslur félagsins eru fasteignaþróun, hótelrekstur, útleiga og rekstur fasteigna. Við ætlum okkur stóra hluti í fasteignaþróun á næstu misserum! www.alvacapital.is
Pörun er lokið fyrir þetta starf en hjá okkur eru fjölmörg önnur tækifæri. Skráðu þig á Opus Futura og parastu við þína framtíð!
Settu ferilskrána þína inn á Opus Futura til að sýna áhuga á og sjá hvort þú parist við þetta starf. Kerfið les ferilskrána yfir í grunninn. Þú þarft aðeins að tryggja að allt sé rétt og skilgreina helstu kröfur þínar. Njóttu þess svo í framhaldinu að parast sjálfkrafa og nafnlaust við öll störf sem viðskiptavinir okkar hafa skilgreint. Við gefum aldrei aðgang að persónulegum upplýsingum þínum eins og nafni, kyni, aldri, vinnustöðum o.s.frv., nema þú hafir samþykkt að þú viljir koma til greina fyrir starf sem þú hefur parast við.
